Yfirvinna sem telur til uppbótaréttinda
Í ákveðnum kjarasamningum, á yfirvinna tímakaups starfsmanna að telja til réttinda til desember- og orlofsuppbóta.
Í staðlaðri uppsetningu yfirvinnu launaliða, þá telja þeir ekki réttindi til desember- og orlofsuppbóta, því þeir launaliðir eru greiddir eftir að fullri vinnuskyldu hefur verið náð.
Við mælum því með að gerður sé sérstakur launaliður fyrir yfirvinnu tímakaups starfsmanna.
Hér er dæmi:
Fyrst veljum við yfirvinnu launalið sem er í notkun í dag. Í aðgerða glugganum hægra megin er smellt á Afrita öll gögn og undirtöflur.
Dæmi um nýtt númer væri 1105, en ef það númer er þegar í notkun, þarf að finna annað númer.
Almennt mælum við með að launaliðir af sama meiði byrji á sömu númera röð. Í þessu tilfelli væri það 110 og svo viðbótar tölustafir þar fyrir aftan.
Ef þessi launaliður á að birtast starfsmanni sem venjuleg yfirvinna á launaseðli, þá er hægt að merkja inn á launaseðils stillingar, sjá mynd:
Það sem þarf svo að bæta við nýja launaliðinn undir reiknistofnum eru RDESUPP og RORLUPP, sjá mynd:
Til þess að nýjir launaliðir komi fram á samtölufæti launaseðils þarf að merkja þá inn skv. leiðbeiningum hér: Uppsetning samtalna launaseðils
Að lokum þarf svo að vera í sambandi við ykkar þjónustuaðila tímaskráningarkerfis til að tryggja að þeir starfsmenn sem eiga að fá yfirvinnu sem telur til uppbótaréttinda, fái hana í skrá eða bunka til H3 á réttan launalið.
Ef notkun nýs launaliðar er tekin upp á miðju uppbóta tímabili, þá er hægt að gera mínusfærslur í skrá tíma og laun á fyrri launalið og plúsfærslur á þennan nýja, til að uppfæra í rétta stöðu réttinda til uppbóta.
Ef þörf er á aðstoð, ekki hika við að hafa samband við ráðgjafa mannauðslausna á h3@advania.is eða í gegnum þjónustuportal Advania á velkomin.advania.is