Útgáfa 8169 - Október-uppfærsla

ATH. Vegna uppfærslu á skírteini verður notandi beðinn um að uppfæra H3+ eftir þessa uppfærslu - einungis þarf að smella á "Install" takkann og eftir stutta uppsetningu opnast H3+ eins og áður.

Þeir sem hafa verið með H3+ fest við verkstikuna (taskbar) gætu þurft að finna H3+ í leitinni (windows hnappur í vinstra horni) og festa H3+ aftur (pin this program to taskbar) 

Ferli

Lýsing á virkni

Kerfishluti

Stillingar / leiðbeiningar

Ferli

Lýsing á virkni

Kerfishluti

Stillingar / leiðbeiningar

STRY0021952

Laun - Vinnslur - Núllstilling á réttindum 

Búið er að betrumbæta vinnsluna Núllstilling á réttindum þegar verið er að núllstilla orlofsuppbót

Laun

Sjá nánar í leiðbeiningum hér

STRY0020337

Laun - Uppfæra

Þegar uppfæra á útborgun birtist nú texti undir Framkvæma uppfærslu sem segir til um hvenær útborgunin var síðast reiknuð, auk þess sem notandi getur smellt á hlekk til að fara inn í endurreikning til að reikna ef þörf er á.

Dæmi um texta:

Athugið að launin voru síðast reiknuð 10.10.2020 10:20 Ef gerðar hafa verið breytingar gæti verið ástæða til að endurreikna launakeyrsluna. Smelltu [hér] til að endurreikna.

Ef útborgun hefur ekki verið reiknuð áður birtist textinn:

Athugið að laun fyrir þessa útborgun hafa ekki verið reiknuð. Smelltu [hér] til að reikna. 

Laun

 

STRY0022504

Laun - Skrá tíma og laun

Laun - Endurreikna - Niðurstöður endurreiknings

Ef starfsmaður er í stöðunni "Óvirkur" birtist nú eftirfarandi athugasemd bæði í Skrá tíma og laun og í Niðurstöðu endurreiknings:

[Kennitala starfsmanns] Starfsmaður með stöðu óvirkur.

Laun

 

STRY0022627

Laun - Starfsmenn

Nú er mögulegt að eyða starfsmanni, breyting sem varð eftir að tímavídd var innleidd kom í veg fyrir að hægt væri að eyða starfsmanni - það hefur verið lagað

Laun

 

STRY0022634

Laun - Hækkanir 

Nú vinnur aðgerðin Hækkanir fyrir orlofs - og þrepahækkanir með tímavídd. Hjá þeim sem eru búnir að virkja tímavídd stofnast nú tímarvíddarfærsla fyrir viðeigandi hækkun í tímarvíddartöflu starfsmanns og miðast hækkunin ávallt við færsludag útborgunar.

ATH. Passa skal ef verið er að vinna með tvær útborganir í einu, að rétt útborgun sé valin þegar hækkunin er keyrð.

Laun

Sjá leiðbeiningar varðandi þrepahækkanir hér

Sjá leiðbeiningar varðandi orlofshækkanir hér

STRY0022441 

Laun - Skrá tíma og laun

Þegar færslur eru skráðar í Skrá tíma og laun og dagsetningarreitum til og frá er breytt í tímabil fyrir virkjun tímavíddar - uppfærast upplýsingar um launatöflu, launaflokk og þrep rétt miðað við það sem var í gildi á þeim tíma.

Einnig, ef skipting er innan útborgunar - það er að segja breyting í reitum sem telja til launa, t.d. um miðjan mánuð, birtast nú athugasemdir í Skrá tíma og laun sem upplýsa notanda um að annaðhvort þarf að smella á reikna eða smella á F5 til að viðkomandi lína skiptist rétt upp.

ATH. Ef reynt er að eiga við línu sem á eftir að skipta upp kemur upp villa sem má þá loka og smella á Hætta við hnappinn sem staðsettur er fyrir ofan kennitölu starfsmannsins í Skrá tíma og laun

Laun

 

STRY0022949

Laun - Starfsmaður - Reiknað orlof

Reikningur í Skrá tíma og laun sýnir nú rétta skiptingu orlofs þegar gildi í reitnum Reiknað orlof hefur verið breytt í tímavídd.

Laun

 

STRY0023209

Laun - Launaliðir

Hægt er að eyða launalið ef engin laun hafa verið greidd út á viðkomandi launalið og engir reiknistofnar eru tengdir honum 

Laun

 

STRY0023191

Innlestur

Villa sem upp kom þegar verið var að lesa upplýsingar úr Excel skjali í starfsmann eða launamann lagfærð 

Laun

 

STRY0022767

Laun - Stofn - Stillir

Sjálfgefin stilling í Ath. > 75% í frádrátt  er nú "Já", var áður "Nei". Stillingunni má breyta undir Laun - Stofn - Stillir

Laun

 

STRY0022283

Laun - Skrá tíma og laun → Söfnunarfærslur allar (ctrl + H)

Hægt var að gera réttindauppgjör í lokaðri útborgun, búið er að koma í veg fyrir að það sé hægt 

Laun

 

STRY0022681

Laun - Starfsmaður

Gildum í reitum sem tilheyra Grunnröðun í svæðinu Grunnlaun í starfsmannaspjaldi má nú breyta hvenær sem er, burtséð frá tímavíddarskráningum. Reiturinn Bókhaldslykill hefur verið færður undir flipann Staða starfs.

Laun

 

STRY0017959

Laun - Stofn - Minnispunktar

Stjórnun - Stofn - Minnispunktar

Í listanum Minnispunktar er búið að bæta við dálk sem sýnir kennitölu þess starfsmanns sem viðkomandi minnispunkur er skrifaður vegna, auk þess sem dálkurinn “Einstaklingur” sýnir nú einnig eldri færslur í töflunni (það er að segja þær færslur sem skráðar voru áður en þessum reit var bætt inn)

Laun

STJÓRNUN

 

STRY0022800

Ráðningar - Umsóknir

Skrunstika (scrollbar) löguð í flipanum "Samskipti" í umsóknum

Ráðningar

 

STRY0023083

Ráðningar - Rafrænar undirskriftir

Lagfæring á birtingu netfangs umsækjanda í Signet-glugga í ráðningum

Ráðningar

 

STRY0023223

Rafrænar undirskriftir

Lagfæring á virkni þegar þriðji aðili sem ekki er starfsmaður fyrirtækis á að skrifa undir fyrir hönd fyrirtækisins

Rafrænar undirskriftir

Leiðbeiningar vegna Signet má finna hér

STRY0022661

Almennt

ATH. Vegna uppfærslu á skírteini verður notandi beðinn um að uppfæra H3+ eftir þessa uppfærslu - einungis þarf að smella á Install takkann og eftir stutta uppsetningu opnast H3+ eins og áður.

Þeir sem hafa verið með H3+ fest við verkstikuna (taskbar) gætu þurft að finna H3+ í leitinni (windows hnappur í vinstra horni) og festa það aftur (pin this program to taskbar) 

Almennt