Hækka einstaklingsbundin laun
Ferli: Laun - Skrá tíma og laun - Aðgerðir
Notendum gefst kostur á að hækka einstaklingsbundin laun í gegnum Aðgerðir í Skrá tíma og laun.
Hækka einstaklingsbundin laun
Notendum gefst kostur á að hækka einstaklingsbundin laun.
Hér geta notendur hækkað Laun yfirskrifuð og Yfirvinnutaxti yfirskrifaður um ákveðna prósentu eða upphæð miða við x dagsetningu í tímavídd starfsmanns.
Valið er hvort verið er að hækka Laun yfirskrifuð eða Yfirvinnutaxti yfirskrifaður með því að ýta á felligluggann hjá Tegund hækkunar.
Næst er valið hvort sé um Prósentu eða Krónu breyting að ræða og í framhaldi hver breytingin er.
Hægt er að skrá lágmark og hámark upphæðir.
Dæmi á mynd, starfsmaður mun allavegana hækka um 30.000 kr en þó aldrei hærra en 100.000 kr.
Mikilvægt er að skrá Viðmiðunardagsetningu hækkunar, því breyting stofnast í tímavídd útfrá þeirri dagsetningu.
Áður er hækkun er framkölluð er hægt að ýta á “Skoða” til að sjá þær breytingar sem munu eiga sér stað.
Dæmi um hækkun:
Hækka laun um 10% sem tekur gildi 01/01/23.
Valið er starfsmaður frá og til, Tegund er Laun yfirskrifuð og prósenta skráð.
Viðmiðunardagsetning 01.01.2023.
Ný tímavídd stofnast 01.01.2023 þar sem laun fara úr 500.000 í 550.000
Bæta þarf við einingunni Hækka einstaklingsbundin laun → salary2040 gott er að bæta þessu við annað hvort launahlutverkið Laun (F) eða Salary1000