Launaseðlar vistaðir í skjalaskáp
Inn í hverri útborgun eru launaseðlunum gefið lýsandi nafn fyrir útborgunina og það afritast sjálfgefið í Heiti í skjalaskáp.
Sjálfgefið kemur hak í Vista launaseðla í skjalaskáp.
Þegar uppfærsla á útborgun er framkvæmd þá vistast launaseðlar í skjalaskáp og sendast launaseðlar í Flóru og/eða á island.is miða við stillingar sem eru skráðar hjá hverjum og einum viðskiptavini.
Hægt er að skoða launaseðlana í Launamenn - Viðhengi - Launaseðlar eða í Skjalaskápur
Vinnslan Vista í skjalaskáp
Ferli: Laun - Úttak - Launaseðlar - Vista í skjalaskáp
→ Sú vinnsla sendir þó ekki launaseðla til Flóru né island.is nema stilling sé á undir Stofn - Stillir - Laun vefþjonusta og skilgreiningar á upplýsingum undir Kerfisumsjón - Flóra - Stillingar
Sjá nánar um stillingar hér: Launaseðlar til island.is (og Flóru)
Þá opnast aðgerðargluggi hægra megin á skjánum. Við veljum þá útborgun sem við ætlum að setja sem viðhengi. Ef setja á viðhengi á alla starfsmenn þarf ekki að fylla inn “Launamaður frá og til”
Við sjáum svo launaseðlana sem viðhengi á launamönnum sem hægt er að skoða með því að smella á bréfaklemmuna fyrir framan nafn launamanns eða í aðgerðarglugganum til hægri undir “Viðhengi”
Ef þið þurfið að breyta heiti á launaseðlum sem þegar hafa verið settir inn í skjalaskápinn þá getið þið gert það með því að smella á “Hægt er að breyta heiti áðurmyndaðra launaseðla í skjalaskáp hér” en fyrst þarf að breyta textanum inn í útborgunarglugganum áður en þetta er framkvæmt.
Þá opnast þessi gluggi og þið veljið þá útborgun sem þarf að breyta heitinu á.