Setja skjal í skjalaskáp

Stjórnun > Mannauður > velja einstakling > smella á litlu bréfaklemmuna fremst í færslunni og smella svo á „Setja inn viðhengi“ neðst:

Eða smella á viðhengismerkið í borðanum hægra megin á síðunni:

Þá opnast glugginn „Setja inn viðhengi“. Þar þarf að:

  • Smella á möppuna hægra megin við Heiti og finna skjalið.

  • Búa til lýsandi heiti í Lýsing.

  • Mikilvægt er að velja rétt í Tegund (hér „Skírteini og réttindi“) því aðgangsstýringar að skjölum í skjalaskáp eru bundnar við tegund. Tegundir eru því eins og læstar skúffur í skjalaskáp og stjórnendum er gefinn aðgangur að mismunandi skúffum / tegundum.

  • Að lokum er smellt á Áfram.