Tengjast teningaskýrslum utan H3 hýsingar

Þeir notendur sem eru með H3 kerfið í H3 hýsingu (HCM) geta nú unnið í teningaskýrslum án þess að skrá sig inn í hýsingarumhverfið.

Helstu kostir þess eru:

  • Aðgengi notanda að teningaskýrslum batnar því þeir þurfa ekki að skrá sig inn í H3 hýsinguna til að nota teningaskýrslur

  • Bætt upplýsingaöryggi þar sem eingöngu eru vistuð gögn í hýsingu undir aðgangsstýringum H3 kerfisins.

 Notendur sem enn hafa teningaskýrslur eða önnur gögn vistuð í H3 hýsingunni eru hvattir til að færa þau gögn út úr hýsingu og inn á drif síns vinnustaðar.

 

 4 Skref til að til að tengjast teningaskýrslum utan hýsingar

  1. Tryggja að IP talan þín sé skráð á Íslandi

  2. Færa teningaskýrslur á drif á sínum vinnustað

  3. Stofna aðgang í Windows Credentials á vél hvers teninganotanda.

  4. Stofna tengistreng inn í teningaskýrslur