Undirskrift þriðja aðila
Hægt er í H3 ráðningar að senda skjal til undirritunar þriðja aðila til dæmis í tilfellum þar sem ungmenni sem ekki eru orðin sjálfráða þurfa undirritun forráðamanns á ráðningasamning.
Netfang forráðamanns þarf að vera aðgengilegt t.d. með skráningu á því í umsókn ungmennis.
Setja þarf á stillingu í H3 sem virkar þannig að forráðamaður fær sent skjal til undirritunar.
Ráðgjafi Advania aðstoðar við að setja þetta upp