Setja upp rafrænar undirskriftir í H3


H3 mannauðslausnir nota Signet til þess að undirrita skjöl, s.s. ráðningasamninga, með rafrænum hætti.  

Fyrirtæki sem hafa aðgang að Signet geta ýmist notað rafrænar undirskriftir gegnum H3 eða beint frá vefsíðu Signet: https://www.signet.is/ 

Kostir þess að nota Signet gegnum H3 eru:

  1. Tengja undirrituð skjöl beint við skjalaskáp starfsmanna eða umsækjenda þannig að þau vistist sjálfvirkt þar.
  2. Hægt er að nota tölvupóstsniðmát í H3 til að aðlaga pósta sem fylgja rafrænni undirskrift að þörfum fyrirtækisins.

Uppsetning Signet

Áður en Signet er sett upp þarf fyrirtæki að hafa tvennt:

  1. Samning við Signet:  https://www.signet.is/Home/About
  2. Búnaðarskilríki: hægt er að nota búnaðarskilríki sem fyrirtækið á fyrir, ef ekki fást Búnaðarskilríki hjá Auðkenni   https://www.audkenni.is/fyrirtaeki/skilriki-fyrirtaekja/bunadarskilriki/ .


Búnaðarskilríki eru sett upp á þeirri vél sem keyrir vefþjón H3, samkvæmt leiðbeiningum útgefanda skilríkis. https://audkenni.s3.amazonaws.com/documents/Microsoft_Word_-_LB_Bunadarskilriki.pdf .

Þegar ofangreint liggur fyrir er haft samband við Ráðgjafa H3 til að tengja Signet við H3 mannauðslausnir.