Eyðing skjala úr Signet undirritun
Skjölum er eytt í Signet í samræmi við þá áskriftarleið sem viðkomandi fyrirtæki/stofnun hefur hjá Signet. Algengur tími sem skjal er vistað í Signet eru 30-90 dagar. Að þeim dagafjölda liðnum er skjölum eytt í Signet.
ATHUGIÐ
Hafið samband við signet@signet.is til að fá upplýsingar um áskriftarleið ykkar hjá Signet
Hafi hins vegar verið sett upp tengsl á milli H3 og Signet, þá eru skjöl sem undirrituð hafa verið í Signet flutt yfir í H3 til varanlegrar geymslu í skjalaskáp H3.
Eyðing skjala úr H3
Hægt er að eyða skjölum sem send hafa verið til undirritunar í Signet, handvirkt í gegnum H3. Hægt er að eyða skjölum handvirkt hvort sem búið er að undirrita þau eða ekki. Athugið, vinnsla eyðir skjölum einungis á Signet vefnum. En skjalið fær stöðuna deleted þegar farið er í “details” í H3.
Þetta er gert með því að fara í Stjórnun>Signet>Saga og velja skjalið sem eyða á. Undir Aðgerðum hægra megin við Sögulistann er valið Eyða skjali í Signet:
Staðfesta þarf að eyða eigi skjali:
ATHUGIÐ
Til að geta eytt skjölum sem send hafa verið í Signet undirritun frá H3, þarf notandi að hafa eininguna Signetdelete.