Villuleit lífeyrissjóða

Villuleit lífeyrissjóða

Til að hægt sé að nota þessa virkni þá þarf að setja einingu á notanda.

Eining → salary2030 Skilgrein lífeyrissjóða

Ferli: Laun - Afstemming - Skilagrein lífeyrissjóða - Villuleit lífeyrissjóða - Aðgerðir - Villuprófa skilagreinar (fyrir sjóði sem bjóða upp á villuleit).

Nú getur notandi framkvæmt villupróf fyrir Live, Brú og Birtu lífeyrissjóði áður en útborgun er lokað.

Við mælum með því að alltaf sé farið í að villuprófa áður en útborgun er lokað, því það getur verið vandasamt að leiðrétta lífeyrissjóðsgjöld eftir á.

Hægt er að keyra villuprófun eins oft og þurfa þiggir á meðan útborgun stendur.

Notendur þurfa að setja inn aðgangsorð sem þau fá frá Live til að geta prófað á móti þeim.

 

Aðgangsorð eru skráð undir Laun - Stofn - Veflyklar - opna Lífeyrisjóð verslunarmanna.

Einnig þar undir Sjóðir í reitnum “Villuleita” er hakað við þá sjóði sem verið er að villuleita hjá Live.

image-20260113-175111.png

 

 

Þetta eru sjóðsnúmerin sem vinna á villuprófun hjá Brú og Birtu:

  • 1680 Brú lífeyrissjóður A deild

  • 3680 Brú lífeyrissjóður - endurhæf.s

  • 1683 Brú lífeyrissjóður V deild

  • 3683 Brú lífeyrissjóður endurhæf.s.

  • 1430 Birtu lífeyrissjóður

Þetta eru sjóðsnúmerin sem vinna á villuprófun hjá Live

 

Aðgerðin mun sækja alla þá starfsmenn sem eru tengdir við Live, Brú og Birtu lífeyrissjóði og keyra villuprófun á ofangreind sjóðsnúmer.

Þetta er gott verkfæri til að stemma af, auðvelt að taka út í excel.

Niðurstöður koma undir Athugasemdir um að villuleit sé lokið.

Ef koma upp Athugasemdir/Villur þá kemur pop up gluggi.

Sjá dæmi, hægt er að smella á Afrita til að vista upplýsingar yfir í excel eða word til að vinna með áfram.

image-20250513-145512.png
image-20260113-181217.png

Til upplýsinga þá gerði Brú lífeyrissjóður breytingar í júní 2025, nú krefst Brú að allir launagreiðendur villuprófi áður en útborgun er lokað, sjá tilkynningu á vef þeirra: Villuprófun skilagreina í A deild | BRÚ Lífeyrissjóður