Orlofshækkanir

Aðgerðin Laun - Hækkanir fyrir orlofs - og þrepahækkanir í tímavídd.

Þeir sem eru búnir að virkja tímavídd þá stofnast nú tímarvíddarfærsla fyrir viðeigandi hækkun í tímarvíddartöflu starfsmanns og miðast hækkunin ávallt við færsludag útborgunnar (-1 mánuð fyrir eftirágreidda).
Séu starfsmenn með framtíðartímavíddarlínur hækka þeir ekki sjálfkrafa og gera þarf viðeigandi ráðstafanir í tímavíddarlínu starfsmanns.

Passa skal ef það er verið að vinna með tvær útborganir í einu að rétt útborgun sé valin þegar verið er að keyra hækkunina.

Orlofshækkanir eru settar upp í hverja launatöflu fyrir sig. Þar er skilgreind orlofshækkun eftir prósentum miðað við starfsaldur og eða lífaldur. 

Valið er hvort Hækkun miðist við Orlofsárið eða Rauntíma

Ef valið er Rauntíma þá á það við bæði Orlofs% DV og Orlofs% ÖN

Ef valið er Orlofsárið þá hækkar Orlofs% DV viðkomandi starfsmanns mánuði eftir að viðkomandi hefur náð starfs- eða lífaldri en hækkar Orlofs% ÖN miða við 1.5. 

Ef þú ert með reiknihópinn RORLOF2 á launagreiðanda skilgreinir þú líka orlofstímafjöldann sem á að safnast upp miðað við 100% starf.

Í dæminu hér að neðan byrjar starfsmaðurinn með 10,17% og orlofstímafjöldann 14,76. Hækkar síðan í 11,59% þegar hann verður 30 ára og er þá með orlofstímafjöldann 16,6 og í 13,04% þegar hann er 38 ára og orlofstímafjöldinn fer þá í 18,46

Athugið að þessar tölur eiga einungis við í launatöflum með vinnuskyldu 160.

Þegar búið er að setja þetta upp þarf að haka við í efri hluta skjámyndarinnar til að virkja


Þegar ný útborgun er stofnuð kemur út ferill sem minnir á hækkunina og gefur kost á að skoða hverjir munu hækka ef aðgerðin er keyrð.


Hægt er að skrá orlofsrétt starfsmanns undir Grunnlaun í Starfsmenn.

Skilgreina þarf forsendur í Launatöflur - Orlofsflokkahækkanir fjöldi orlofsdaga þá sækir kerfið orlofsprósentu í DV og ÖN, hægt er þó að yfirskrifa upplýsingar í þessum reitum.

Formúlan sem er notuð er skv sa.is - innvinnsla orlofslauna

Dæmi: 24/260-24=10,1695 > 10,17%